Auglýsingar

Í Eglu mátti gera ýmis verkefni, sem maður mátti velja 3 eða fl. verkefni af mörgum verkefnum.

Ég var að vinna með Eygló og við bjuggum til dúkkur, bjuggum til föt svo það var hægt að klæða þær í og settum í kassa og svo glæru eina hliðina svo dúkkan var í eins kassa og Barbie :)

Svo ákváðum við að gera auglýsingar, við völdum ýmislegt til að auglýsa en sumt gekk ekki, eins og að auglýsa skinnskó til skrauts af því að það var engin mynd á netinu a.m.k. ekki svo við fundum, við fundum myndir af því sem við auglýstum og töluðum inná, eins og er gert í útvarpinu og svo rúlluðu myndirnar meðan við lásum um það sem myndin var af. Þetta var mjög skemmtilegt og við hlógum mikið þegar við gerðum þettaW00tLoL

Vonandi viltu horfa:)

 

Svo gerðum ég og Eygló með Díönu satt eða ósatt, þá áttum við að segja frá einhverjum atburði í Eglu, sem okkur fannst vera mjög líklegt að hann væri sannur eða einhvern sem okkur fannst mjög ósannur, við völdum ósannur það er að segja okkur fannst mjög ósennilegt að Egill hafi drepið naut án vopna , Atli hafi galdrað sverð Egils bitlaust og svo hafi Egill bitið barkakýlið úr Atla.. við lýstum því og gerðum mynd á plaggat og límdum textann á:)


löndin sem ég gerði


Evrópulönd

Núna erum við búin að vera að vinna í power point/movie maker í Evrópu. Ég valdi að gera power point, við áttum að velja a.m.k 2 lönd, mátti gera fl. en maður átti ekki að gera um lönd sem maður vissi mjög mikið um, það mátti t.d. ekki gera um norðurlöndin því að við vorum að vinna með þau í firra.

Ég byrjaði að gera um Írland og það gekk ágætlega, svo þegar ég hélt að ég væri búin gerði ég um Litháen og það var erfitt að finna upplýsingar um Litháen. Svo sagði anna að það þurfti að gera seinna landið eitthvað land í austur-Evrópu.
Ég helt þá að ég þurfti að hætta að gera um Litháen en svo sagði hún að það var í lagi að gera um austur-Evrópu lönd eða Eistland, Lettland eða Litháen.

Svo þegar ég var búin að gera um Litháen, sá ég að það voru miklu fleiri upplýsingar í Litháen verkefninu mínu svo ég gerði meira í Írlandi.

Ég fann flestar upplýsingarnar á wikipedia.org , ferðaheimur eða einhverjum ferðaskrifstofu síðum eins og uu.is. Svo skrifaði ég líka á google kannski pictures of Ireland og þá kom einhverjar síður sem var með fullt af flottum myndum og það stóð undir af hverju myndin var, og ég notaði það, svo spurði ég líka suma hvort þeir vissu e'h um Litháen eða Írland, fáir vissu e'h en einhver sagði mer 3 fótboltastráka í Írlandi HaloWink

Í Evrópuverkefninu erum við líka búin að gera einhvernvegin bækling, eða svara spurningum í honum. Við lesum deigi áður kannski um e'h eins og benenux- löndin og svo komum við í skólann daginn eftir og þá kynnti Anna fyrir okkur þau lönd með power pointi svo svörum við spurningum um benenux-löndin. Við erum líka búin að gera um t.d. Bretland, Suð-austur Evrópu, Sviss, Austurríki, Spán, Portúgal og fl. Við erum líka búin að gera stórt aukaverkefni sem var að skrifa höfuðborgirnar í Evrópu, skrá þau lönd sem liggja ekki að sjó, hvaða land er með flest landamæri í Evrópu, skrá stærð,íbúafjölda og íbúafjölda á km2 á löndum í Evrópu og skrá hvaða lönd liggja að hvaða höfum

Þetta var ágætt verkefni.Cool


Flickr

Við notum mikið síðuna www.flickr.com, hún er mjög góð myndasíða sem lærðir ljósmyndarar eru búnir að taka myndir á og við fáum þær ókeypis. Við skrifum það sem við erum að leita af á ensku af því að þetta er ensk síða og svo koma myndir af því sem við leitum af.

Þetta eru mjög flottar myndir og þú getur farið á þessa síðu ef þér vantar flotta myndW00t


Íslenska..Hallgrímur Pétursson

Ég vann verkefnið um Hallgrím Pétursson með því að finna fullt af upplýsingum um hann á netinu t.d. skólavefinn, vísindavefinn og fl.  Skrifaði svo í word punkta um hann og smá texta. Ég gerði svo power point út frá word skjalinu um hann, þegar það var búið, skreyta power pointið downloadaði ég Audocity sem er forrit til þess að lesa inná, ég las inná fyrstu glæruna eða talaði út frá henni og setti svo inná power pointið sem anna kennari kenndi mer að gera.Wink

svo setti ég power pointið mitt á síðu sem heitir www.slideshare.net en það kenndi Anna mér að gera líka og það tókst mjög vel af því að krakkar sem voru búnir að þessu sögðu mér hvað ég ætti að gera..Tounge

Þegar ég var að gera verkefnið lærði ég að tala inn á glærur, setja power point inná slideshare.net og fullt um Hallgrím af því að ég vissi eiginlega ekkert um hann nema að hann var með Guðríði og var höfundur.

Mér fannst svolítið erfitt að skilja textann sem stóð um hann, hann var svo fullorðinslegurHaloWink


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband